4 AA hleðslurafhlöður 2100 mAh
Rafhlöðurnar frá UNiROSS eru tilbúnar til notkunar þegar þær eru keyptar.
Hægt er hlaða rafhlöðurnar allt að 500 sinnum og líftíminn er 5 ár.
Vegna þess hve oft má hlaða rafhlöðurnar eru þær umhverfisvænsti kosturinn.
Framleiðandi:
UNiROSSÞyngd innihalds:
113 gHeildarþyngd:
113gHæð: 120mm Breidd: 85mm Dýpt: 15mm
Söluaðilar:
Náttúran.isRafhlöður
Athugið að ekki er hægt að flokka frauðplast til endurvinnslu!
Bláa tunnan er í boði fyrir íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Í bláu tunnuna má setja öll dagblöð, tímarit, markpóst og annan prentpappír.
Bláu tunnurnar eru losaðar á þriggja vikna fresti en oftar á álagstímum í desember/janúar.
Tunnan sem í boði er á höfuðborgarsvæðinu er eign Reykjavíkurborgar og er verð á leigu og þjónustu falið í árgjaldi.
Græna tunnan er í boði á ýmsum stöðum á landinu. Dagblöð, tímarit, bæklinga og pappa má setja beint í tunnuna, mjólkurfernur í sér poka, niðursuðudósir og smærri málmhluti í sér poka, plastumbúðir í sér poka. Rafhlöður og gler má ekki setja í Grænu tunnuna. Græna tunnan er endurgjaldsskyld þjónusta á vegum Íslenska gámafélagsins ehf.
Endurvinnslutunnan er í boði á ýmsum stöðum á landinu. Dagblöð, tímarit, skrifstofupappír, bæklinga, umslög og fjölpóst, pappa s.s. hreina pizzukassa og morgunkornspakka má setja beint í tunnuna. Fernur í sér poka, niðursuðudósir og smærri málmhluti í sér poka, plastumbúðir í sér poka. Rafhlöður má setja í tunnuna í bláum sérmerktum pokum. Gler má ekki setja í Endurvinnslutunnuna. Endurvinnslutunnan er endurgjaldsskyld þjónusta á vegum Gámaþjónustunnar hf.
Allar plastumbúðir, s.s. brúsar, fötur, plastpokar o.fl. Endurnýting hérlendis og erlendis. Plastumbúðir eru flokkaðar eftir tegundum til áframhaldandi vinnslu. Plastumbúðirnar skulu vera tómar, hreinar og samanpressaðar.
Dagblöð, tímarit, auglýsingapóstur, prentpappír, hreinar og tómar umbúðir úr sléttum pappa, fernur, morgunkornspakkar, eggjabakkar og pakkningar utan af matvælum s.s kexi og pasta. Fjarlægið plast og matarleifar úr umbúðum. Skolið fernur og brjótið umbúðir saman.
til baka
Allar upplýsingar eru með fyrirvara um gögn frá framleiðanda eða innflytjanda, innsláttarvillur, myndabrengl og annað sem rangt gæti verið.
Verð er í ISK m/VSK

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búast má við stormi (meira en 20 m/s) á SV-verðu landinu á morgun. Gildir til 07.02.2012 18:00Meira














