
Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Garðurinn - Húsdýr
Þau dýr sem algengust eru á bæjum og býlum kallast húsdýr. Það eru kýr, hestar, kindur, geitur, svín, hænur og fleiri tegundir dýra svo sem eins og gæsir og kanínur. Öll þessi dýr eiga það sameiginlegt að þau eru á býlinu af ákveðinni ástæðu. Hún er sú að maðurinn getur nýtt sér dýrin á einhvern hátt s.s. til átu, reiða, mjólkur-, kjöts- eða eggjaframleiðslu. Miklar framfarir á sviði kynbóta hafa átt sér stað á undanförnum árum og þykja þær orðnar sjálfsagður hlutur.
Það þarf mikið magn vatns, heys, korns og ekki síst lands til að framleiða hvert kíló af kjöti. Að borða minna kjöt er því eitt það besta sem við getum gert fyrir umhverfið.
Lífrænn landbúnaður er sú tegund landbúnaðar sem byggir á skiptiræktun, moltugerð, lífrænum áburði, lífrænu skordýraeitri og mekanískri ræktun til að viðhalda gæðum jarðvegsins og til að hafa stjórn á skordýrum/skordýraplágum. Notkun tilbúins áburðar er haldið í algjöru lágmarki, og erfðabreytt afbrigði eru ekki notuð svo eitthvað sé nefnt. Um 32,2 milljónir hektara á jörðunni eru núna ræktaðar á lífrænan hátt.
Þannig viðheldur lífræni landbúnaðurinn gæðum jarðvegsins, og skapar lífsskilyrði fyrir bæði vistkerfi og manneskjur. Lífrænn landbúnaður byggir á líffræðilegri fjölbreytni, vistvænum ferlum, hringrásum efna í náttúrunni og tekur tillit til þeirra sérstöku aðstæðna sem eru á hverjum stað fyrir sig. Lífrænn landbúnaður sameinar nýsköpun og vísindi til að bæði umhverfið og mannkynið njóti góðs af og skapar forsendur til að allir fái þau lífsgæði sem þeir þurfa.
Vistvænn búskapur kallast gæðastýrður hefðbundinn búskapur og er gæðaeftirlit, vottun og vörumerki þá á höndum búnaðarsambanda.
Vottunarstofan Tún er aðili að IFOAM og hefur eftirlit með vottunum á lífrænni landbúnaðarframleiðslu á Íslandi. Sjá frekari upplýsingar á síðu alþjóðasamtaka lífrænna ræktenda - www.ifoam.org.
Einkunn
- Ferðaþjónusta
- Félög og samtök
- Framleiðsla
- Garðurinn
- Húsið
- Húsráð
- Landið
- Náttúran
- Náttúruauðlindir
- Náttúrumarkaður
- Safn
- Tákn
- Vatn
Tengt lesefni:
Ferðaþjónusta: Hreindýraskoðun [3]
Félög og samtök: Dýravernd [34]
Framleiðsla: Kjötvörur [1]
Garðurinn: Áhöld [9]
Garðurinn: Dýr [31]
Garðurinn: Endurvinnsla [65]
Garðurinn: Gróðursetning [26]
Garðurinn: Smáfuglar [28]
Húsið: Garðurinn [24]
Húsráð: Gæludýr [7]
Landið: Dýralíf [101]
Náttúran: Húsdýr í sveit [11]
Náttúruauðlindir: Hreindýraveiðar [3]
Náttúrumarkaður: Gæludýravörur [10]
Safn: Dýr [6]
Safn: Dýragarður [4]
Tákn: Dýr [3]
Vatn: Vatnadýr [7]
Grænar síður:
Hreindýraskoðun [3]
Dýravernd [3]
Kjötvörur [3]
Dýr [1]
Endurvinnsla [6]
Smáfuglar [1]
Dýralíf [16]
Húsdýr í sveit [41]
Hreindýraveiðar [1]
Gæludýravörur [1]
Dýr [18]
Dýragarður [7]
Vatnadýr [3]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búast má við stormi (meira en 20 m/s) á SV-verðu landinu á morgun. Gildir til 07.02.2012 18:00Meira

Nýleg orð í belg
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:















