MálningHreyfilhitariHjólbarðarHjólbarðarBíllreiðVatnsnotkunHjólbarðarHitiRafmagnEldsneytiHreinsiefniVerkfæriEiturefniLýsingFerðalögGeymsla
Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar

Bílskúrinn - Bíll

Umhirða bílsins

  • Best er að fara með bílinn í allsherjarskoðun hjá bílaumboðinu að minnsta kosti einu sinni á ári.
  • Ráðlagt er að gá að loftþrýstingnum í dekkjunum reglulega.
  • Dekkin slitna minna ef loftþrýstingurinn er réttur auk þess sem eldsneyti sparast ef dekkin eru ekki of loftlítil.
  • Gott er að bóna bílinn nokkrum sinnum á ári. Þá festist olía og ryk síður á bílnum. Hreinn bíll sparar eldsneyti því viðmótið af óhreinindunum hefur sín áhrif. Sjá einnig Lakk og umhirða þess.
  • Hægt er að fá vistvæn og umhverfismerkt hreinsiefni fyrir bílinn. Betra er að velja hreinsiefni sem byggir á propylenglykol en etylenglykol. Propylenglykol er minna eitrað. Ensímefni eru vistvæn lausn. Umhverfismerkt hreinsiefni eru til í miklu úrvali í dag.
  • Nauðsynlegt er að hafa viftu í bílskúrnum til að halda loftinu á hreyfingu, sérstaklega þegar bíllinn kemur blautur inn eða snjóbarinn. Annars ryðgar bíllinn mjög fljótt.

Nokkur öryggisatriði

  • Hættulegt er að geyma drasl í bílnum. Það getur kastast til við árekstur og valdið miklum skaða.
  • Ónauðsynlegt er að nota nagladekk nema algjöra nauðsyn krefji.
  • Ráðlagt er að taka toppgrindina og tengdamömmuboxið af bílnum þegar þú þarft ekki á þeim að halda. Box eykur loftmótstöðu og eyðslu um allt að einn lítra á hverja 100 km.
  • Aktu á löglegum hraða. Bíll sem keyrir á 100 km hraða í stað 80 km/klst. eyðir um 20% meira eldsneyti. Ef þér liggur lífið á að ná næsta rauða ljósi, hafðu þá í huga að stór hluti eldsneytisnotkunar innanbæjar fer í að taka af stað. Best er að halda jöfnum hraða.

Þarftu raunverulega bíl?

Ef að þú er að hugsa um að kaupa bíl, íhugaðu þá fyrst hvort þú þurfir nauðsynlega á nýjum bíl að halda. Þú getur tekið leigubíl ansi oft í stað þess að eiga bíl.

Dæmi: Aukabíll á heimilið kostar um 900.000 krónur á ári [2010] með tryggingum, afskriftum, bensíni o.s.fr.v. Ef hjón geta samekið í vinnu og það sem sækir börnin tekur bílinn og hitt leigubíl heim og leigubíllinn kostar um 2000 krónur reiknast dæmið þannig: Flest fólk vinnur um 220 daga á ári og þá kostar leigubíllinn um 440.000 krónur á ári. Þegar mikið liggur við er hægt að taka bílaleigubíl þar sem þeir eru ódýrir 9 mánuði á ári, auk þess að það er hægt að skemmta sér og taka marga leigubíla í viðbót fyrir 460.000 krónur.

Auk þess er hollt og gott að ganga stuttar vegalengdir.

Umhverfisvænir bílar

Það felst ákveðin þversögn í að tala um „umhverfisvæna“ bíla og nærri lagi að nota hugtakið „minna umhverfisskaðandi“ eða í mesta lagi „visthæfir“, því enginn bíll er sérstaklega vænn umhverfinu. Líta verður á allan líftíma bílsins til að skoða umhverfisáhrif, jafnt hráefnisöflun í bíinnn, orku til famleiðslu, efnanotkun við framleiðslu, flutninga, áhrif af akstri á notkunartíma, endingu og að lokum förgun.

Reykjavíkurborg skilgreinir visthæfa bíla eftir eldsneytiseyðslu og eldsneytisgerð. Samkvæmt því falla 22 bílar á íslenskum markaði undir það að geta talist visthæfir. Sjá lista yfir bílana hjá Bílgreinasambandinu.

Tvinnbílar nota bæði bensínvél og rafmagnsvél og losa mun minna af mengandi lofttegundum en bensínbílar af sömu stærð.
Tvinnbíllinn Toyota Prius var valinn bíll ársins í Evrópu árið 2005. Í dag [2007] eru rúmlega 200 slíkir bílar á götum landsins. Toyota fullyrðir að bíllinn sé 90% endurvinnanlegur.

Tvinnbílinn Honda Civic fæst einnig á Íslandi. Einnig er hægt að fá Lexus tvinn fólksbíla og jepplinga.

Metanbíla er þó óhætt að tala um sem „umhverfisvæna“ á notkunartíma þeirra. Í fyrsta lagi er brennsla metans kolefnishlutlaus og í öðru lagi eyðir hún metangasi sem er verulega slæm gróðurhúsalofttegund. Hægt er að umbreyta næstum hvaða bíl sem er til að brenna metangasi. 555 bílar keyra á metani á Íslandi í dag [júlí 2011] en nokkur fyrirtæki bjóða upp á metanbreytingar og verða þær æ vinsælli.

Díselbílar geta verið hentugir ef þeir eru með sótagnasíu sem síar úr hættulegt svifryk og PAH agnir. Díselbílar menga hinsvegar talsvert þannig að díselbíllinn er ekki betri en bensínbíllinn nema hann sé með hvarfakút og sótagnasíu. Athugaðu að sían hreinsar sig sjálf.

Aðrar lausnir eins og tengil-tvinnbíll er í sjónmáli þó að hann sé enn ekki kominn á markað. Þá getum við stungið bílnum í samband á nóttinni og hlaðið hann fyrir akstur næsta dags.

Lífdísel eru rétt að komast í umræðuna hérlendis.

Nokkrir vetnisfólksbílar eru komnir til landins sem hluti af vetnisverkefninu. Fyrsta etanóldælan verður opnuð 2008 en aðeins eru tveir etanólbílar á landinu enn sem komið er. Þróunin er ör um þessar mundir, miðað við það sem verið hefur. Sem betur fer eru framleiðendur og neytendur þó að vakna til meðvitundar um hversu gríðarlega mikilvægan málaflokk hér um ræðir. Markmiðið ætti auðvitað að vera að vistvænir bílar verði regla en ekki undantekning eins og nú er raunin.

Kemstu af með rafmagnsbíl?

Þeir eru yfirleitt smáir og komast ekki langt í einu en þeir eru ódýrir í rekstri og umhverfisvænstu farartæki sem völ er á í dag. Nokkrir slíkir bílar eru til hér á landi. Athugaðu að það eru líka til rafmagnsreiðhjól.

Veldu minnsta bílinn

Ekki velja stærri bíl en þú þarft á að halda. Hugsaðu um umhverfið og veldu minnsta bílinn sem þú kemst af með. Flestir kaupa bíl sem uppfyllir allar þarfir fólks alltaf. Það þýðir að fólk er að kaupa bíl sem er kannski fullnýttur 5 daga á ári en vannýttur 360 daga. Þetta er léleg hagfræði. Kauptu þér bíl sem passar 360 daga á ári og síðan er hægt að finna lausn fyrir hina 5 dagana sem er mun ódýrari en að kaupa stærri bíl.

Að nota sama bílinn

Athugaðu hvort að þú getur fengið far með samstarfsmanni í vinnuna. Því fleiri sem deila bíl, því betra fyrir umhverfið auk þess sem að það getur verið miklu skemmtilegri ferðamáti.

Að nota fjarskiptin í stað bílsins

Ef þú notar símann og tölvupóst meira sparar þú bílinn. Aktu minna með því að nota veraldarvefinn. Með því að senda tölvupóst og halda fjarfundi, má draga úr ferðalögum. Að versla í netverslunum er í raun mjög umhverfisvænt.





Einkunn

Flokkar:

Orð í belg

Anna - miðvikudagur 6. júlí, 2011 klukkan 17:19:46

Ánægjuleg þróun! http://eyjan.is/2011/07/05/555-metanbilar-i-landinu-tvofalt-fleiri-en-2009/

1 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Bílskúrinn: Áhöld [16]

Bílskúrinn: Farartæki [89]

Bílskúrinn: Ferðalög [24]

Bílskúrinn: Hiti [14]

Bílskúrinn: Hjólbarðar [26]

Bílskúrinn: Hreinlætisvörur [20]

Bílskúrinn: Raftæki [32]

Bílskúrinn: Reiðhjól [42]

Bílskúrinn: Hreyfilhitari [14]

Eldsneyti: Repjuolía [2]

Húsið: Bílskúrinn [23]

Húsráð: Bílskúrinn [36]

Mengun: Ökutæki [48]

Orka: Bíódísel [20]

Orka: Endurnýjanleg [55]

Orka: Jarðefnaeldsneyti [10]

Orka: Lífetanól [10]

Orka: Metan [37]

Orka: Orkusparandi tækni [36]

Orka: Rafhlöður [16]

Orka: Rafmagn [65]

Orka: Vetni [23]

Samgöngur: Ökutæki [47]

Tækni: Orka og eldsneyti [195]

Tækni: Tæki [22]

Umhverfið: Eldsneyti [37]

Umhverfið: Orka [232]

Vistvænt: Eldsneyti [35]

Grænar síður:

Farartæki [5]

Ferðalög [1]

Hjólbarðar [1]

Hreinlætisvörur [4]

Raftæki [2]

Reiðhjól [3]

Bílskúrinn [2]

Bíódísel [3]

Endurnýjanleg [64]

Jarðefnaeldsneyti [3]

Lífetanól [4]

Metan [10]

Orkusparandi tækni [8]

Rafhlöður [4]

Rafmagn [55]

Vetni [5]

Ökutæki [5]

Orka og eldsneyti [31]

Tæki [3]

Eldsneyti [8]

Orka [73]

Eldsneyti [15]

Nýleg orð í belg

Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Sóríasis
TAkk
:D 17. 01. 2012 20:21:

Fréttir frá: