Fréttir

Skráðu þig á Náttúrupóstlistann

Einn af þjónustuliðunum hér á Náttúrunni er rafrænn fréttapóstur. Með því að skrá þig á póstlistann. Þú skráir þig hér lengst til vinstri á vafranum (flipinn með RSS, Twitter, Facebook og umslagi, fyrir póstlistaskráninguna) ert þú að gerast áskrifandi að ókeypis fréttapósti sem berst þér vikulega án allra skuldbindinga. Einnig eru birtar upplýsingar um nýjar vörur á Náttúrumarkaði, sérstök tilboð eru í boði fyrir áskrifendur og margt fleira spennandi verður í boði.

Þú getur að sjálfsögðu afskráð þig þegar að þú vilt eða framsent fréttapóstinn áfram á vini og kunningja á mjög einfaldan hátt. Þeir geta þá einnig skráð sig á póstlistann og sent hann áfram á vini sína og kunningja.


nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
30. júlí 2010 13:38
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Hvað er svona umhverfisvænt við að versla á Náttúrumarkaði?

Hér á Náttúrumarkaði, vefverslun Náttúran.is, er úrval af lífrænum, náttúrulegum og umhverfisvottuðum vörum á boðstólum. Til þess að geta veitt neytendum upplýsingar um umhverfisvænar og heilbrigðar vörur tengist hver vara ítarlegum upplýsingum um innihald, vottanir og endurvinnslumöguleika. Hugmyndin er að þegar að vafrað er um verslunina læri maður hvað merkin þýða með því að renna yfir þau. Þetta á við um umhverfismerkin, lífrænu vottunarmerkin og siðgæðis- og endurvinnslumerkin. Í dag eru yfir þrjúhundruð vörur í tuttuguogníu deildum á markaðinum og úrvalið eykst stöðugt. Stefnt er að því að geta boðið upp á vörur úr öllum vöruflokkum.

Annað sem að Náttúrumarkaðurinn á netinu getur haft fram yfir venjulegar verslanir er að í bögglinum koma margar vörutegundir heim að dyrum, í safnsendingu. Kolefnislosun og önnur umhverfisáhrif af flutningum eru því í algeru lágmarki þar sem Íslandspóstur á hvort eð er flesta daga leið heim til þín með annan póst. Að keyra á heimilisbílnum frá einni búð til annarar mengar meira og kostar þig bæði tíma og peninga.

Að versla á Náttúrumarkaðinum getur því bæði verið mun ódýrara og umhverfisvænna þegar allt kemur til alls. Veldu deild hér til hægri á síðunni. Ef þú ert að leita að ákveðinni vöru eða vilt þrengja leitina og finna ákveðið vörumerki eða vottun opnar þú „Leit“ flipann á Náttúrumarkaði.

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?


meira
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
30. júlí 2010 10:34
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Ólafsmessa

Þær eru reyndar tvær til minningar um Ólaf digra Noregskonung. Hin fyrri er 29. júlí, sem talinn er dánardagur hans á sólmyrkvanum 1039, sem stjörnufræðingar halda að geti staðist. Sú síðari er 3. ágúst, þegar bein hans voru að sögn tekin upp árið 1031. Fyrri dagurinn varð meiri hátíð á því takmarkaða svæði, sem helgi Ólafs digra gætti. Varð þetta ein aðalhátíð Færeyinga fram á þennan dag.

Heimildir eru og til um svonefnd Ólafsgildi á Íslandi á 12. öld, en furðulítið ber á Ólafsvökunni eftir þann tíma. Geta mætti þess til, að mjög hafi dregið úr hátíðarhaldi þessu, eftir að Þorláksmessa á sumri var tekin upp aðeins rúmri viku fyrr. Má mikið vera, ef Þorláksmessu hefur ekki einmitt verið valinn tími með hliðsjón af þessu. Það gat verið augljóst hagsmunaatriði fyrir Skálholtsstól sakir heitgjafanna, sem auðvitað reiddust enn fúslegar af hendi á þessum degi en endranær, og þá var lítið etftir handa Ólafi skömmu síðar.


nánar
Árni Björnsson
29. júlí 2010 23:45
Uppruni:

Einkunn

Magn svifs minnkar

BreiðifjörðurMagn svifs í hafinu minnkar um 1% á hverju ári. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem birt var í vísindaritinum Nature. Svif er samheiti yfir ýmis konar dýr og plöntur sem eru örsmá og rekur fyrir straumum í hafinu. Svif er neðsti hlekkurinn í fæðukeðju sjávar og undirstaða alls lífs í hafinu, enda nærist fjöldi stærri tegunda eingöngu á svifi.

Vísindamenn við Dalhouse háskóla í Kanada rannsökuðu magn svifs í hafinu undanfarin ár en skoðuðu líka gögn allt aftur til ársins 1899. Þeir segja loftslagsbreytingar eina meginorsök þess að svifmagn minnkar eins mikið og raun ber vitni. Áhrif þessa eru umtalsverð því auk þess að vera undirstaða alls lífs í hafinu gegnir svif mikilvægu hlutverki við framleiðslu súrefnis í lofthjúpi jarðar.

Mynd frá Breiðafirði. Ljósmynd: Guðrún Tryggvadóttir.


nánar
Rúv
29. júlí 2010 22:11
Uppruni: Ríkisútvarpið ohf

Einkunn

Svansbúðin - fyrir alla sem selja Svansmerktar vörur

Svansbúðin

Náttúran.is hefur opnað nýja deild á Náttúrumarkaði undir nafni Svansins. „Svansbúðin“ er fyrir alla sem selja Svansmerktar vörur. Bæði geta þeir selt beint í gegnum Náttúrumarkaðinn eða aðeins kynnt vörurnar sínar, alveg eins og hverjum og einum hentar. Aðalatriðið er að yfirlit verði til yfir allar Svansmerktar vörur sem í boði eru hér á landi. Nýju leitarskilyrðin gefa líka möguleika á að þrengja leitina eftir vottun en til þess að vara birtist þarf að vera búið að skoða hana rækilega, mynda og skrá allar upplýsingar um innihald vörunnar og endurvinnsluleiðir.

Sjá þau fyrirtæki sem hafa Svansvottun hér á landi á Grænum síðum.

Sjá þá vöruflokka sem eru í boði af Svansvottuðum vörum hér á landi undir „Vörur/Vottað Svanurinn“ en í hverjum flokki finnur þú hvaða fyrirtæki flytja inn/dreifa viðkomandi vöruflokki og hvað vörurnar heita. Sé varan til nákvæmlega skráð til sölu eða kynningar er hana að finna í Svansbúðinni hér á Náttúrumarkaði. Samsvarandi flokkur er fyrir þjónustuflokkana undir „Þjónusta/Vottað Svanurinn“ hér á Grænum síðum.

Einnig er hægt að sjá gott yfirlit yfir aðilana hér á Græna Íslandskortinu í flokknum „Umhverfisvænar vörur“.

Þeir sem vilja láta skrá vörur í Svansbúðina hafi samband á nature@nature.is eða í síma 483 1500.


meira
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
29. júlí 2010 15:56
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

12342651101645646647

2005   2006   2007   2008   2009   2010  
jan   feb   mar   apr   maí   jún   júl  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Leit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Borgarafundur í Iðnó um Magma og auðlindirnar
Sömu gömlu aðferðirnar. Fjárfesta áður en leyfi er fengið. Leyfi sem mun ekki fást þar ...
Gunna Tryggva 29. 07. 2010 08:22:
Borgarafundur í Iðnó um Magma og auðlindirnar
Skoðanakönnun Capacent/Gallup leiðir í ljós að 85% eru á móti því og 60% mjög mikið ...
Guðrún Tryggvadóttir 28. 07. 2010 23:49:
Borgarafundur í Iðnó um Magma og auðlindirnar
„Lausn komin á Magma-málið segir á visir.is“ reyndar bara tilkynning um að tilkynna eigi um ...
Guðrún Tryggvadóttir 27. 07. 2010 15:08:
Litlu álfaspáspilin
Þetta eru alveg ótrúlega skemmtileg spil. Ég á stokk sjálf og finnst gott að grípa ...
Guðrún 26. 07. 2010 22:54:
Björk og Ross Beaty skrifast á
Magma's Corporate Profile: „Since inception in early 2008 we have acquired one operating power plant ...
Guðrún Tryggvadóttir 24. 07. 2010 13:16:
Björk og Ross Beaty skrifast á
VG með kröfu um riftun Magma-samningsins – Samfylkingin áminnt: http://eyjan.is/2010/07/24/vg-med-krofu-um-riftun-magma-samningsins-samfylkingin-ihugi-sina-stodu/
Guðrún Tryggvadóttir 24. 07. 2010 11:24:
VG krefst frestunar allra framkvæmda í stóriðju
Það stóð aldrei til að samsteypustjórn Vinstri Grænna og Samfylkingarinnar gerði eitthvað gagnlegt í orkumálum ...
Ásgeir Valur Sigurðsson 23. 07. 2010 17:24:
Vefurinn orkuaudlindir.is liggur niðri af ókunnum orsökum
Orkuaudlindir.is er aftur kominn í loftið!
Guðrún Tryggvadóttir 23. 07. 2010 16:02: