08.09.2010 kl. 09:14
Lokað
Vegur númer 305, Villingarholtsvegur, verður lokaður á milli Ferjunes og Sýrlækjar í dag, miðvikudag 8. september frá kl. 8 árdegis til miðnættis.
Framkvæmdir og viðhald
Unnið er við viðgerð á malaröxlum frá vegamótum við Hafravatnsveg að hringtorgi við Norðlingaholt í dag.
Verið er að gera hringtorg á Reykjanesbraut við Grænás. Umferð er beint um á hjáleið fram hjá vinnusvæðinu.
Unnið er að tvöföldun Hringvegar (1) í Mosfellsbæ, frá Hafravatnsvegi að Þingvallavegi.
Nokkuð víða er unnið að vegavinnu og yfirlögnum á slitlagi, með tilheyrandi lausamöl og steinkasti. Vegfarendur eru eindregið beðnir að aka varlega um vinnusvæðin og virða merkingar um hámarkshraða.
Akstur á hálendisvegum
Þeir sem ætla að aka um hálendið eru beðnir að fullvissa sig um að þeir hafi nógu stór og öflug ökutæki til að fara þær leiðir sem þeir hafa í huga og kanna vatnsmagn í ám ef vöð eru á leiðinni en vatnsmagn í ám á hálendinu er nú með meira móti.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingumHeimild:
Vegagerðin