Áliðnaður: Fyrirtæki

Ef smellt er á hluti birtast nánari upplýsingar
Iðnaður
Iðnaður er mikilvægur hluti af atvinnulífi hverrar þjóðar. Hann hefur þó margvísleg áhrif á umhverfi og náttúru sem ekki eru öll af hinu góða. Stór iðnfyrirtæki losa t.d. mikið af gróðurhúsalofttegundum út í andrúmsloftið þótt gerðar séu strangar kröfur til mengunarvarna í starfsleyfum.
Umhverfisstjórnun er því mikilvægur þáttur í allri slíkri starfsemi. Gerðar eru kröfur um „grænt bókhald“ hjá slíkum fyrirtækjum auk þess sem mörg þeirra setja sjálfum sér skýr umhverfismarkmið og vinna samkvæmt ítrustu varfærni í umgengni við náttúruna í starfsemi sinni. Tæplega 50 stofnanir og fyrirtæki halda grænt bókhald.
Þetta er þó ekki nándar nærri nógu útbreyddur metnaður. Umhverfisstjórnunarstaðallinn ISO 14001 er t.a.m. á fáum stöðum í heiminum eins lítið notaður og hér á landi. Aðeins 15 fyrirtæki hafa uppfyllt kröfur ISO 14001 til þessa.
Merkja má hve umhverfismeðvituð fyrirtæki eru með því að skoða hvort þau hafi umhverfisvottun, hafi umhverfisstefnu sína aðgengilega og helst á forsíðu heimasíðu sinnar og hvort að fyrirtækið hafi verið verðlaunað af opinberum aðilum fyrir umhverfisstarf sitt. Upplýsingar um öll þessi atriði er að finna hér á „grænum síðum“.
nánar
Náttúran er
15. janúar 2012 16:15
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Álver á Bakka slegið út af borðinu
Náttúran.is fagnar því að áður fyrirhugað álver á Bakka við Húsavík hafi verið slegið út af borðinu. Reyndar er löngu ljóst að fyrirbærið var aldrei nema skýjaborgir fáfróðra stjórnmálamanna og gráðugra heimamanna, en nú er málinu s.s. lokið.
Þann 1. mars 2006 var fjallað um undirritun samkomulags álrisans ALCOA og ríkisstjórnar Íslands um að hefja hagkvæmnikönnun á því að reisa 250 þúsund tonna álver á Bakka, eins og að um happdrættisvinning fyrir Húsavík og alla landsmenn væri að ræða (sjá grein). Í raun var síðan ætlunin að fara í 460.000 tonna álver.
Það var síðan álrisinn sjálfur sem sá fram á að hann fengi ekki rafmagnið gefins og gæti ekki farið í eins stórar framkvæmdir, eins fljótt og hann vilidi. Það er vel, og þó fyrr hefði verið.
Það er nefnilega þannig að gegn þessum áformum hafa náttúruverndarsamtök á borð við Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands,Framtíðarlandið og margir fleiri, ekki síst öflugir einstaklingar barist um árahríð. Það hefur tekið sinn toll af fólki og margir eru langþreyttir á að vera sífellt að slökkva elda sem stjórnvaldið hefur blásið lífi í. Því má ekki gleyma nú, hvert hlutverk náttúruverndarfólks er í að opna blind augu valdsins og græðginnar á þenslutímum. Breytt stjórnskipun í landinu og ný stefna Landsvirkjunar hefur auðvitað sitt að segja líka en markviss fræðsla og viðvaranir náttúruverndarsinna voru aflið sem þurfti til að sú breyting gæti átt sér stað.
Náttúran.is hefur aldrei verið hrædd við að taka afstöðu með nátturunni og tók einnig virkan þátt í baráttunni, en hér á vef Náttúrunnar hafa birst ótal greinar þar sem fjallað er um álver á Bakka með einum eða öðrum hætti. Aldrei þó til að byggja undir þá draumsýn margra að verkefnið væri raunhæfur kostur. Þú getur skoðað sögu baráttunnar með því að slá inn t.d. „á Bakka“ hér í leitarvélinni ofarlega til hægri á síðunni. Þá koma upp 44 greinar. Í tengdum greinum sérð þú síðan alla sögu náttúruverndarbaráttunnar á Íslandi sl. 7 ár. Góða skemmtun!
Ljósmynd: Húsavík, úr Fréttablaðinu.
nánar
Guðrún Arndís Tryggvadóttir
18. október 2011 14:28
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Mengunarslys líklega af mannavöldum
Fjórir eru látnir og á annað hundrað slasaðir eftir mengunarslys í súrálsverksmiðju í vesturhluta Ungverjalands. Slysið er sagt vera eitt hið versta í landinu fyrr og síðar.
Neyðarástandi var lýst yfir í þremur sýslum í Ungverjalandi í dag eftir að rauð, báxítmenguð leðja rann frá verksmiðjunni í stríðum straumum. Auk þeirra fjögurra sem hafa fundist látnir er sex til viðbótar saknað.
Leðjan flæddi um að minnsta kosti sjö þorp og bæi, þar á meðal Devecser, þar sem ástandið var sagt afar alvarlegt. Svo öflugt var flóðið að það skolaði bifreiðum út af vegum og skemmdi brýr og hús.
Forsætisráðherra Ungverjalands, Viktor Orban, segir að mengunarslysið í súrálsverksmiðju í vesturhluta landsins megi hugsanlega rekja til mannlegra mistaka. Fjórir létu lífið þegar ein milljón rúmmetra af báxít-menguðu vatni flæddi úr verksmiðjunni gegnum nokkur þorp. Að minnsta kosti 120 slösuðust.
Neyðarástandi var lýst yfir í þremur héruðum fyrr í dag. Búið er að stöðva lekann frá súrálsverksmiðjunni og góðar líkur eru taldar á því að hægt verði að koma í veg fyrir að úrgangsvatnið renni í Dóná.
nánar
Ríkisútvarpið
6. október 2010 10:24
Uppruni: Ríkisútvarpið ohf
Einkunn
Gróðurhúsaáhrif
Eitt stærsta vandamál nútímans er losun gróðurhúsalofttegunda. Ástæðan er sú að gróðurhúsalofttegundir í andrúmsloftinu eins og koltvíoxíð, metan og vatnsgufa valda því að sá varmi sem berst frá sólinni endurkastast ekki aftur út í geiminn, heldur safnast upp í andrúmsloftinu. Þannig myndast eins konar gróðurhús utan um jörðina.
Meðalhiti jarðar hefur þegar hækkað um 0,7°C frá því fyrir iðnbyltingu og fram á okkar tíma. Magn koltvíoxíðs hefur hækkað frá 280 ppm upp í 375 ppm (2005).
þessi grein er lengri, lesa meira...
Náttúran
18. apríl 2010 22:54
Uppruni: Náttúran.is
Einkunn
Helguvíkurjafnan
12.1.2009 17:38 Árni Finnsson
Samfylkingin – iðnaðarráðherra Össur Skarphéðinsson – hefur samið við Sjálfstæðisflokkinn að Samfylkingin fengi að virkja Þjórsá (Urriðafoss) fyrir litlu hátæknistóriðjuna hans Össurar gegn því að Sjálfstæðisflokkurinn fengi grænt ljós (ríkisstuðning) á álver í Helguvík.
Flokkarnir skiptu með sér fengnum eftir kosningar 2007.
Iðnaðarráðherra, Össur Skarphéðinsson, segir ríkisstyrkinn til Norðuráls hlutfallslega minni en þann sem Alcoa Fjarðaál fékk. Samkvæmt svari þáverandi iðnaðarráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, fékk Alcoa 34,3 millj. Bandaríkjadala, eða „... um 3% af áætluðum stofnkostnaði álversins ...”
Skþringuna á lægri ríkisstyrk til Norðuráls má lesa í svari iðnaðarráðherra, Valgerðar Sverrisdóttur, við fyrirspurn Jóns Bjarnasonar, þingmanns VG.
Þar sagði Valgerður:
þessi grein er lengri, lesa meira...
Árni Finnsson
13. janúar 2009 17:16
Uppruni: Árni Finnsson
Einkunn

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búist er við stormi (meðalvindur meiri en 20 m/s) S- og A-lands seinnipartinn á morgun. Gildir til 07.02.2012 18:00Meira

Nýleg orð í belg
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
+ Fleiri ummæli















