Náttúran.is: Þjónustan

Tökum höndum saman og stundum vistvæn innkaup!

Vistvæn innkaup snúast um að velja þá vöru sem er síður skaðleg umhverfinu og heilsu manna samanborið við aðrar vörur sem uppfylla sömu þörf og samtímis bera sama eða lægri líftímakostnað.

Til þess að auðvelda innkaup á vörum og þjónustu sem eru síður skaðleg umhverfi og heilsu hefur Náttúran.is tekið saman 11 viðmið sem spanna veigamestu þættina. Viðmiðin eru einföld og hjálpa til að nálgast markmiðið, það er að velja bestu vöruna út frá sjónarmiði heilsu, umhverfis og jafnvel félagslegum aðstæðum sem í daglegu tali eru nefnd sjálfbær þróun.

Hér í láréttu röðinni sérð þú táknmyndir fyrir viðmiðin og í lóðrettu röðinni táknmyndir ýmissa vörutegunda. Ef þú opnar flipann „Viðmið“ hér til hægri á síðunni og smellir á þessi tákn getur þú lesið þig til um hvert viðmið og vörutegund fyrir sig auk þess sem að auðvelt er að sjá hvaða viðmið eiga við hverja vörutegund þar sem viðeigandi viðmið eru sýnileg í láréttu línunni út frá vörunni.
Viðmiðin eru: Orka, eldsneyti, vatnsnotkun, ofnæmi, hættuleg efni / tilbúin efni, þungmálmar, öryggisblað, umhverfismerkingar, sanngirnisvottun, vinnuumhverfi og endurvinnsla.

Eitt eða fleiri af þessum viðmiðum eiga að meira eða minna leiti við um hverja einustu vöru. Um leið og við gerum okkur grein fyrir því eftir hverju þarf að leita til að velja vistvænstu vöruna verða vistvæn innkaup leikur einn.

En eins og með allt annað þá skapar æfingin meistarann. Jörðin okkar þolir ekki lengur þá rányrkju og vanvirðingu sem henni er sýnd í dag.

Tökum höndum saman og stundum vistvæn innkaup!


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
5. febrúar 2012 10:16
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Voffi - leitarvél Náttúrunnar

Leitarvél 200% á 120x120p grunni

Voffi er ein „persónan“ í merki Náttúrunnar og tákn fyrir leitarvélina hér á vefnum en hann þefar uppi og vísar þér á það sem þú ert að leita að hvort sem það er hugtak, fyrirtæki eða ákveðin vara. Prufaðu að slá inn það sem þú hefur áhuga á að finna í leitarreitinn hér til hægri á síðunni og smelltu á leita.

Fyrir nýjustu útgáfu Náttúrunnar höfum við þróað leit að vörum á Náttúrumarkaði en hún gefur þér kost á að þrengja leitina enn frekar og finna vörur eftir framleiðanda, merkingu eða vottun. Sjá hér til hægri undir Vöruleit á Náttúrumarkaði.

Þú getur einnig farið beint á Grænar síður og leitað í aðalflokkunum eða slegið inn atriðisorð eða heiti aðilans sem þú leitar að. 

Græna Íslandskortið er enn önnur leið til að leita hér á vefnum. Þú smellir á Grænt Íslandskort og sérð þá þrjá meginflokka sem táknaðir eru með þremur litum þ.e.: bláum fyrir „Sjálfbæran lífsstíl“, grænum fyrir „Náttúruna“ og appelsínugulum fyrir „Menningu og samfélag“.

Ef þú finnur ekki eitthvað sem þú leitar að þá skrifaðu Voffa á nature@nature.is eða hringdu í síma 483 1500 og hann hjálpar þér við leitina.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
13. janúar 2012 14:44
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Fréttastefna Náttúrunnar

Fréttir 200% á 120x120p grunni

Fréttagátt fyrir alla
Náttúran.is er óháður regnhlífarvefur og birtir skoðanir allra sem vilja koma skoðunum sínum á framfæri. Hver sem er getur sent inn frétt og tilkynnt um viðburð. Þær fréttir sem birtar eru á Náttúrunni verða að birtast undir nafni höfundar og ber höfundur einn ábyrgð á skrifum sínum.

Siðferðileg mörk
Náttúran.is áskilur sér rétt til að taka út fréttir og „orð í belg“ sem eru særandi, móðgandi eða geta beinlínis skaðað einhverja persónu, fyrirtæki eða stofnun. Náttúran tekur ekki afstöðu til pólitískra mála en er yfirlýstur málsvari umhverfisins.

Grænar innlendar og erlendar
Grænar íslenskar: Stefna Náttúrunnar er að koma á framfæri öllu því sem fréttnæmt getur talist á sviði náttúru- og umhverfismála á Íslandi. Þar má nefna nýsköpun á sviði vöruþróunar og þjónustu, fundir og ráðstefnur, yfirlýsingar og kærur, ferðamál og útivera, uppskeru og ræktun, sem og allt það sem tengist þeim persónum, félögum, stofnunum og fyrirtækjum sem tengjast málefninu á einhvern hátt.
Grænar erlendar: Náttúran.is leitast við að tengja Ísland við alþjóðasamfélagið og birtir greinar um þróun umhverfismála hvaðanæva að úr heiminum.

Ritstjóri er Guðrún A. Tryggvadóttir.

Senda frétt eða grein til Náttúrunnar á nature@nature.is.

Sjá veðurkort Náttúrunnar.

Við minnum á RSS fréttafóðrun Náttúrunnar (sjá hér í flipanum til vinstri) og RSS fréttir frá öðrum miðlum hér neðst til hægri á síðunni.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
12. janúar 2012 14:43
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Grænar síður Náttúrunnar

Grænar síður 200% á 120x120p grunni

Náttúran.is lítur á það sem samfélagslega skyldu sína að þróa eins fullkomnar „grænar síður“ fyrir Ísland og mögulegt er. Grænu síðurnar™* gefi þannig yfirsýn yfir hin fjölmörgu fyrirtæki og stofnanir sem tengjast náttúru og umhverfi á einn eða annan hátt. Grænu síðurnar tengja viðmið og vottanir við fyrirtæki og vörur og gefa hinum almenna neytanda möguleika á að beina viðskiptum sínum þangað sem honum finnst vera stunduð fyrirmyndar starfsemi. Grænar síður eru liður í að gera eftirfarandi markmið Náttúrunnar að veruleika:

  • Að þróa tæknilegar lausnir að samskiptaveröld sem getur tengt á milli þátta sem annars hafa aðeins huglæga eða óbeina tengingu.
  • Að auka veg íslenskrar náttúru og náttúruafurða í landkynningarlegu tilliti.
  • Að efla atvinnutækifæri henni tengdri um allt land og á öllum sviðum.
  • Að efla þátttöku sem flestra í umhverfismeðvituðum lifnaðarháttum og neyslu sem er síður mengandi eða skaðleg en önnur.

Á Grænum síðum eru upplýsingar um fyrirtæki og stofnanir sem uppfylla eftirfarandi skilyrði eða stunda eftirtalda starfsemi:

  • Hafa umhverfisvottun (vottun þriðja aðila) fyrir framleiðslu sína eða starfsemi.
  • Eru seljendur umhverfis- og/eða sanngirnisvottaðrar vöru.
  • Hafa opinbera umhverfisstefnu.
  • Hafa fengið umhverfisviðurkenningu.
  • Halda grænt bókhald.
  • Eru eftirlitsaðilar, matsaðilar eða stofnanir.
  • Eru í ferli til að fá vottun.
  • Bjóða þjónustu tengda náttúru og/eða umhverfi.
  • Stunda sjálfbæra starfsemi.
  • Eru framleiðendur/innflytjendur náttúrulegrar framleiðslu og/eða heilsuvöru.

Ekkert gjald er tekið fyrir grunnskráningu á Grænar síður. Hægt er að bæta ítarupplýsingum við skráninguna gegn hóflegu skráningargjaldi til eins árs í senn. Vottanir og aðrar ítarupplýsingar þurfa að vera byggðar á kröfum og skilyrðum tiltekinna vottunaraðila og vera óvéfengjanlegar. Náttúran áskilur sér rétt til að kynna sér réttmæti innsendra upplýsinga og vinnur í þeim tilfellum með viðkomandi vottunar- og eftirlitsaðilum.

2373 aðilar eru skráðir á Grænar síður (staðan í janúar 2012). Til þess að komast að því hvort að þitt fyrirtæki eða einhver sem að þér finnst að ætti heima á Grænum siðum sé þar inni nú þegar, þá ferð þú inn á Skráning á Grænar síður eða beint inn á Grænar síður og leitar í viðeigandi flokki eða slærð inn atriðisorð eða heiti þess sem þú vilt finna. Hafir þú tillögur að skráningu aðila á Grænar síður eða vilt breyta eigin skráningu, af einhverjum ástæðum, þá hafðu samband og við leitumst við að fullkomna skráninguna og/eða við sendum þér aðgangsorð og notendanafn að þinni skráningu.

Allar tillögur að nýskráningum eru vel þegnar enda ekki hægt að vinna slíkar landsyfirlit án aðstoðar allra sem hlut eiga að máli. Sendu fyrirspurn eða tillögu á nature@nature.is eða hringdu í síma 483 1500.

Skráning á Grænar síður:

Grunnskráning:
Heimilisfang (heimilisfang, póstfang og sími) – gjaldfrjálst 
Vottanir og merki (hafi viðkomandi vottun) – gjaldfrjálst 
Upplýsingar um samskipti (nafn, gsm, fax, netfang og veffang) – gjaldfrjálst 
Aukaskráningar:
Lógó eða merki – gjald 4.750* 
Upplýsingar um starfssemi (lýsing á rekstri og þjónustu) – gjald 4.750*  
Upplýsingar um vörur og þjónustu (lýsing á vörum, vörumerki og þjónustu) – gjald 4.750*

Einfalt er að leiðrétta eða bæta við skráningu. Til að bæta við skráninguna er hakað við þann flokk sem bæta á við og þá opnast viðeigandi hluti skráningarinnar. Verð er síðan reiknað eftir völdum flokkum og birtist neðst á síðunni ásamt leiðum til greiðslu.

*Verð íslenskum krónum, m. vsk. Verð miðast við skráningu í eitt ár. Ef skráð er til tveggj ára í senn er veittur 30% afsl. á seinna ári.

Hægt er að skrá upplýsingar á þremur málum, þ.e.; íslensku ensku og þýsku.

*Vörumerkið „Grænar síður“ er í eigu Náttúran er ehf.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
11. janúar 2012 20:45
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

Græn kort Náttúrunnar

Grænt kort 200% á 120x120p grunni

Grænt Íslandskort er samvinnuverkefni Náttúran.is, fjölþjóðlega verkefnisins Green Map® System og Land- og ferðamálafræðistofu Háskóla Íslands. Græna Íslandskortið og Græna Reykjavíkurkortið byggja á flokkunarkerfi Green Map og gagnagrunni Grænna síðna Náttúrunnar sem er árangur 8 ára rannsóknarvinnu á vistvænum kostum í viðskiptum og ferðamennsku á Íslandi.

Kortið birtist á íslensku á Natturan.is, ensku á Nature.is og á þýsku á Natur.is, í samhengi við það gríðarlega magn af umhverfisupplýsingum og vottunartengingum sem fyrir hendi eru á vefnum. Við gáfum út Grænt Reykjavíkurkort í prentútgáfu haustið 2010 og aftur sumarið 2011. Öllum er frjálst að fá skráningu svo framarlega sem að starfsemin byggist á viðurkenndum vottunum eða aðferðafræði enda ekki ætlunin að grænþvo neinn sem ekki uppfyllir þau skilyrði sem sett eru við kortagerðina.

Tilgangur grænna korta er að gefa yfirsýn yfir þá fjölmörgu umhverfisvænu kosti sem fyrir eru í landinu og hvetja fjólk til að nýta sér þá og styðja frekar þau fyrirtæki sem vinna á umhverfismeðvitaðan hátt.

Þeir sem vilja sækja um skráningu á Græna kortið skrifi okkur á nature@nature.is. Grunnskráning er ókeypis!

Skoða Græna Íslandskortið.

Skoða Græna Reykjavíkurkortið.

Sjá prentútgáfu Græna Reykjavíkurkortsins hér á Náttúrumarkaði.

Ef þú vilt vita meira, gera athugasemdir eða taka þátt í vinnu við kortin, þá skrifaðu okkur á nature@nature.is eða hringdu í síma 483 1500.


þessi grein er lengri, lesa meira...



Guðrún Arndís Tryggvadóttir
10. janúar 2012 13:55
Uppruni: Náttúran.is

Einkunn

123

2005   2006   2007   2008   2009   2010   2011   2012  
jan   feb  

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Nýleg orð í belg

Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Sóríasis
TAkk
:D 17. 01. 2012 20:21:

+ Fleiri ummæli

Fréttir frá: