Fréttir
Marteinsmessa
Hún er 11. nóvember og kennd við Martein biskup í Tours í Frakklandi, sem á að hafa dáið í kringum árið 1400. Hann var samkvæmt helgisögninni svo velsinnaður mðaur, að eitt sinn er hann sem ungur hermaður hitti fyrir nakinn beiningamann, sem var að krókna úr kulda, sneið hann yfirhöfn sína í tvennt og gaf vesalingum helminginn. Næstu nótt birtist Jesús Kristur Marteini í draumi klæddur í kápuslitur beiningamannsins, sem hann kvaðst hafa fengið hjá Marteini.
Eftir þessa vitrun lét Marteinn af hermennsku, tók kristna trú og gerðist klerkur. Varð hann brátt svo nafnfrægur, að fast var lagt að honum að taka við biskupsdómi, en hann færðist lengi undan fyrir lítillætis sakir.
Yngri gerð helgisagnarinnar lætur Martein hafa flúið upphefðina og falið sig í gæsakofa. En gæsirnar fældust við og komu upp um felustað hans með fjaðraþyt og gargi. Neyddist hanný á til að taka við kaleik biskupstignarinnar. Sagan segir síðan, að Marteinn hafi drepið allar gæsirnar í hefndarskyni. Af ví að sá siður að vera sprottin, sem nokkuð er útbreiddur var á Norðurlöndum og Þýskalandi á síðari öldum, að slátra gæsum og eta á Marteinsmessu. Er hér komið enn eitt dæmi þess, hvernig kristilegar helgisagnir eru hagnýttar til að gleðja holdið.
Ekki er kunnugt um slíka venju hér á landi, enda þess vart að vænta, þar eða gæsarækt, sem talsverð var á þjóðveldisöld, mun hafa verið að mestu niðurlögð, þegar þessi grátbroslega saga komst á kreik. En allmikil helgi var á Marteini dýrlingi. Þrjár sögur eru til af honum á íslensku og ekki færri en fimm kirkjur voru honum helgaðar. Íslenskt altarisklæði með myndum úr hans fróma lífi var til að Grenjaðarstað, líklega frá 14. öld. Það var keypt héðan og flutt til Frakklands árið 1836 og er geymt í Cluny-safninu í París.
Um siði tengda Marteinsmessu er varla kunnugt hérlendis, nema hvað algengt var að miða við þann dag, hvenær taka skyldi hrúta á gjöf eða öllu heldur fjarlægja þá frá ánum, so að þær yrðu ekki lembdar fyrr en hæfilegt þótti. En upp úr miðjum nóvember má búast við því, að ein og ein ær verði blæsma, þótt það heyri fremur til undantekninga svo snemma. Aðrir dagar eru og tilnefndir í þessu skyni. Í þjóðveldislögunum er miðað við veturnætur og eru umþað allströng ákvæði. Eggert Ólafsson hefur sömu sögu að segja frá miðri 18. öld. Stundum er þó miðað við allraheilagramessu eða fyllingu fyrsta vetrartungls, og er það sjálfsagt upphaflegast.
Í núgildandi búfjárræktarlögum er miðað við 5. Nóvember.
Reyndar eru þessird dagar ekki einungis valdir vegna hættu á ofbráðu lambfangi, því að oft var saumað fyrir hrúta leppur eða speldi til að varna við slíku. En þeir eru óhraustari en ærnar og voru taldir leggja of mikið af, væru þeir hafðir lengur úti, og mjög brýnt var, að þeir væru vel í stakk búnir, þegar að því kom, að þeir skyldu gegna sinni frumskyldu.
Allt um það hefur kveðið svo mikið að því, að miðað væri við 11. nóvemer, að Halldór Vilhjálmsson skólastjóri á Hvanneyri sá ástæðu til að veitast að þessari bábilju á prenti og taldi nær að miða við veðurfar en heilagan Martein. Og maður fæddur rétt fyrir aldamót í Hnappadalssýslu kveðst aldrei hafa heyrt talað um annan dag, enda hafi sá dagur allt eins oft verið kallaður hrútamessa einsog Marteinsmessa. Er hér annað dæmi þess, hvernig kristilegur helgidagur er í hagræingarskyni notaður til mjög svo veraldlegrar ráðstöfunar.
Tengdir viðburðir
Marteinsmessa
11. nóv. 2010 00:01
11. nóv. 2011 11:45
Uppruni:
til baka
Sjá tengt lesefni og tilvísanir í Grænar síður hér til hægri.
Flokkar:
- Bændadagatal
- Dagatal
- Viðburðir
Tengt lesefni:
Bændadagatal: Dagar [62]
Bændadagatal: Vetur [105]
Dagatal: Bændadagatal [106]
Dagatal: Merkisdagar [79]
Dagatal: Viðburðadagatal [347]
Viðburðir: Hátíðir [59]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búast má við stormi (meira en 20 m/s) á SV-verðu landinu á morgun. Gildir til 07.02.2012 18:00Meira

Færð og aðstæður
Á Suðurlandi eru hálkublettir á efri hluta Landvegar og flughálka á Grafningsvegi en greiðfært er á öllum helstu leiðum. Þoka er á Hellisheiði og í Þrengslum.Á Vesturlandi eru hálkublettir í Svínadal. Flughálka og óveður er á Fróðárheiði og einnig er óveður á norðanverðu Snæfellsnesi. Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði.
Á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Flughálka er á Vatnsfjarðarhálsi, Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, Klettshálsi og Kleifaheiði en þar er einnig óveður. Flughálka er einnig frá Bjarnafjarðarhálsi að Gjögri.
Á Norðvesturlandi er hálka og hálkublettir. Flughálka er á einhverjum útvegum. Hálka er á Öxnadalsheiði.
Norðaustanlands er hálka á Víkurskarði, Mývatns- og Möðrudalsöræfum, Hálsum og Hófaskarði.
Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði en flestar aðrar leiðir eru greiðfærar.
Á Suðausturlandi eru allar helstu leiðir greiðfærar.
Ábendingar frá veðurfræðingi
Reikna má með snörpum vindhviðum, 30 til 40 m/s, á norðanverðu Snæfellsnesi í dag, frá því um kl. 09 til 10 og fram undir kvöld.Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður viðauki 1 felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá kl. 10:00 mánudaginn 6. febrúar á ölum vegum í Árnes og Rangárvallasýslu nema vegi 39. Þrengslavegi, vegi 38 Þorlákshafnavegi frá Þrengslavegi að Þorlákshöfn og vegi 1. Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn á nokkrum vegum á Austurlandi og eins á Suðausturlandi alveg vestur að Hvolsvelli.
Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður viðauki 1. feldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá kl. 15 mánudaginn 6 febrúar á vegi 54 Snæfellsnesvegi frá Borgarnesi og öllum vegum á Snæfellsnesi.
Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Nýleg orð í belg
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/















