Fréttir
Allraheilagramessa
Hún er 1. nóvember og átti að vera messudagur allra þeirra sannheilögu manna, sem ekki höfðu fengið sinn sérstaka dag í kirkjuárinu. Daginn eftir er svo allrasálnamessa. Þá átti að biðja fyrir sálum þeirra fátæklinga, sem ekki höfðu haft nein efni á því að gefa svo mikið fé til kirkna, að prestar syngju sérstaka sálumessu fyrir þeim til að stytta dvölina í hreinsunareldinum. Það er því greinilegt, að fyrstu tveir dagar nóvembermánaðar voru í katólskum sið einkum helgaðir aumum og fátækum.
Í fornum bókum íslenskum er allraheilagramessa mjög oft getið, og má af því ráða, að hún hefur verið stórhátíð og mikill viðmiðunardagur. Til dæmis um það hve sérstakur hátíðisdagur erfiðismanna hún hefur verið, er ákvæði frá því um 1200 í máldaga eða reglugerð fyrir ferju á Ölfusá hjá Kaldaðarnesi. Þar eru m.a. tilgreindir þrír einir dagar á ári, sem ferjumaður er ekki skildugur að sinna starfi sínu. Það er páskadagur, vígsludagur sóknarkirkju hans og allraheilagramessudagur. Auk þess erum það stuttort ákvæði í þjóðveldislögnunum, að fyrir þann dag skyldu hinir efnaðri menn gefa hjúum sínum og öðrum fátækum ríflega af mat.
Það er því harla sennilegt, að um það hafi orðið samkomulag milli kirkjuyfirvalda og almúga að færa vetrarfagnaðinn fram til þessara verndardaga hinna fátæku. Þá var sláturtíð líka án nokkurs vafa lokið, jafnvel þótt hún hæfist ekki fyrr en um það leyti, því að þá væru dilkar vænstir til frálags.
Þessi tilgáta væri þó varla frambærileg, ef viss arftaki þessa fagnaðar virtist ekki hafa verið enn á kreiki á 19. Öld. Þar er átt við svokallaða sviðamessu, sem að flestra sögn átti sinn stað á allraheilagamessu. Yngri sagnir geta reyndar einnig um hana á fyrsta vetrardegi. Það gast verið hentugri dagur, eftir að sláturtíð hófst fyrr. En þá hefur öll bannhelgi á fyrsta vetrardegi verið löngu gleymd.
Nóvember heitir hjá Guðbrandi Þorlákssyni ríðtíðarmánuður. Þetta nafn hefur vafist nokkuð fyrir mönnum ogsumir viljað breyta því í hríðtíðarmánuð með skírskotun til veðurfarsins. En ríðtíð eða riðtíð getur annars bæði merkt fengitími eða hrygningartími. Mun þá átt við hrygningartíma silunga fremur en fengitíma sauðfjár, enda er nefndur riðfiskur í mánaðarvísu um nóvember í því sama almanaki.
Tengdir viðburðir
Allraheilagramessa
1. nóv. 2010 09:34
1. nóv. 2011 11:44
Uppruni:
til baka
Sjá tengt lesefni og tilvísanir í Grænar síður hér til hægri.
Flokkar:
- Bændadagatal
- Dagatal
- Heilsan
Tengt lesefni:
Bændadagatal: Dagar [62]
Bændadagatal: Vetur [105]
Dagatal: Bændadagatal [106]
Dagatal: Merkisdagar [79]
Dagatal: Viðburðadagatal [347]
Heilsan: Andlega hliðin [19]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búast má við stormi (meira en 20 m/s) á SV-verðu landinu á morgun. Gildir til 07.02.2012 18:00Meira

Færð og aðstæður
Á Suðurlandi eru hálkublettir á efri hluta Landvegar og flughálka á Grafningsvegi en greiðfært er á öllum helstu leiðum. Þoka er á Hellisheiði og í Þrengslum.Á Vesturlandi eru hálkublettir í Svínadal. Flughálka og óveður er á Fróðárheiði og einnig er óveður á norðanverðu Snæfellsnesi. Hálkublettir eru á Holtavörðuheiði.
Á Vestfjörðum er hálka eða hálkublettir á flestum leiðum. Flughálka er á Vatnsfjarðarhálsi, Steingrímsfjarðarheiði, Þröskuldum, Klettshálsi og Kleifaheiði en þar er einnig óveður. Flughálka er einnig frá Bjarnafjarðarhálsi að Gjögri.
Á Norðvesturlandi er hálka og hálkublettir. Flughálka er á einhverjum útvegum. Hálka er á Öxnadalsheiði.
Norðaustanlands er hálka á Víkurskarði, Mývatns- og Möðrudalsöræfum, Hálsum og Hófaskarði.
Á Austurlandi er hálka á Fjarðarheiði en flestar aðrar leiðir eru greiðfærar.
Á Suðausturlandi eru allar helstu leiðir greiðfærar.
Ábendingar frá veðurfræðingi
Reikna má með snörpum vindhviðum, 30 til 40 m/s, á norðanverðu Snæfellsnesi í dag, frá því um kl. 09 til 10 og fram undir kvöld.Þungatakmarkanir
Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður viðauki 1 felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá kl. 10:00 mánudaginn 6. febrúar á ölum vegum í Árnes og Rangárvallasýslu nema vegi 39. Þrengslavegi, vegi 38 Þorlákshafnavegi frá Þrengslavegi að Þorlákshöfn og vegi 1. Hringvegi frá Reykjavík að Selfossi.Vegna hættu á slitlagsskemmdum hefur viðauki 1 verið felldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn á nokkrum vegum á Austurlandi og eins á Suðausturlandi alveg vestur að Hvolsvelli.
Vegna hættu á slitlagsskemmdum verður viðauki 1. feldur úr gildi og ásþungi takmarkaður við 10 tonn frá kl. 15 mánudaginn 6 febrúar á vegi 54 Snæfellsnesvegi frá Borgarnesi og öllum vegum á Snæfellsnesi.
Misjafnir þjónustutímar
Vegfarendur eru beðnir að hafa í huga að víða er ekki mokstur eða önnur þjónusta á vegum, á kvöldin og yfir nóttina. Þá eru sumir vegir ekki í þjónustu nema fáa daga í viku. Upplýsingar um þjónustutíma eru á vef Vegagerðarinnar og í síma 1777.Hreindýr á Austur- og Suðausturlandi
Vegagerðin og Náttúrustofa Austurlands vara vegfarendur við umferð hreindýra á Austur- og Suðausturlandi.Sjá má staðsetningu hreindýrasvæða hér.
Upplýsingar birtar með fyrirvara um heimild og tæknilegt aðgengi að upplýsingum
Heimild: Vegagerðin
Nýleg orð í belg
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Fréttir frá:
Samtökum lífrænna neytenda
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Náttúrufræðistofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisráðuneytinu
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Umhverfisstofnun
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Sólheimum
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Loftslag.is
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Saving Iceland
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
Meira...
RSS fréttir frá Náttúran.is má nálgast á feed://natturan.is/feeds/















