Fréttir

22. apríl er Dagur Jarðar

Á fimmtudaginn er „Dagur Jarðar“ haldinn hátíðlegur um allan heim en Dagur Jarðar var fyrst haldlinn hátíðlegur þ. 22. apríl 1970 í Bandaríkjunum þegar um 20 milljónir manna tóku þátt í hátíðahöldunum. Ákvörðun um að efna til Dags Jarðar var tekin árið áður á ráðstefnu grasrótarsamtaka á sviði umhverfisverndar í Bandaríkjunum. Á þeim tíma var umræðan um offjölgun í heiminum að komast í hámæli og miklar áhyggjur voru uppi um framtíð Jarðar vegna fólksfjölgunar.

En Degi Jarðar óx fiskur um hrygg er grasrótarsamtök með mismunandi umhverfisáherslur sáu mikilvægi þess að sameinast um hátíðahöld á einum degi á ári „Degi Jarðar“. 

Þann 22. apríl árið 1990 voru 200 milljónir manna í 141 löndum þátttakendur í hátíðahöldum Dags Jarðar og áherslan á verndun Jarðar með aukinni endurvinnslu, baráttu gegn olíuslysum, verksmiðjumengun, afrennslisvandamálum, eyðingu búsvæða villtra dýra o.s.fr. Sjá nánar um sögu Earth Day á Wikipediu.

Nú 40 árum eftir fyrsta Dag Jarðar stöndum við frammi fyrir vandamálum sem tekur alla jarðarbúa að leysa. Þess vegna hefur Dagur Jarðar aldrei verið mikilvægari en í dag. Dagur Jarðar 2010 er kenndur við loftslagsbreytingar, orkusparnað, endurnýjanlega orkugjafa og græn störf. Fjölbreytt dagskrá hefur verið undirbúin víða um heim og áherslurnar eru jafn margar og vandamálin sem leysa þarf. Sjá nánar um það sem um er að vera í heiminum í dag á Degi Jarðar á hinum opinbera Jarðadagsvef earthday.org.

Jarðardagur hefur þó ekki náð að festa sig almennilega í sessi hér á landi. Skýringin er vafalaust sú að við höfum okkar eigin „Dag umhverfisins“ þremur dögum seinna og í ofanálag fellur okkar fyrsti sumardagur einmitt á þennan dag.


Grafík: Jörðin og umhverfið, Guðrún Tryggvadóttir og Signý Kolbeinsdóttir ©Náttúran.is.




Einkunn

Flokkar:
0 orð í belg

Leggðu orð í belg

Nafn:

Orð í belg:


Vinsamlega reiknið dæmið hér að ofan og setjið niðurstöðuna í reitinn.
Gert til að tryggja mannlegan uppruna orðanna.

Öllum er frjálst að skrifa undir nafni eða dulnefni að eigin ósk. Hugmyndin er að þetta sé vettvangur jákvæðrar og málefnalegrar umræðu um dægurmál, vörur, þjónustu og leiðir til að skapa betra umhverfi okkur öllum til handa. Ritstjórn Náttúrunnar áskilur sér allan rétt til að fjarlægja óviðurkvæmileg orð í belg að hluta eða öllu leyti. IP-tölum höfunda er haldið til haga.

Náttúrumarkaður

Hvernig versla ég á Náttúrumarkaði?
  • Deildir
  • Karfa
  • Vöruleit
  • Viðmið
  • Skilmálar
Indicator

Tengt lesefni:

Dagatal: Merkisdagar [79]

Dagatal: Viðburðadagatal [347]

Umhverfið: Alþjóðleg umhverfismál [346]

Umhverfið: Heimurinn [319]

Grænar síður:

Nýleg orð í belg

Landneminn alaskalúpína
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Avokadoolía í stað augnkrems
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Avokadoolía í stað augnkrems
Hvar fæst svona avokadoolía???
Elín 23. 01. 2012 13:26:
Spjaldtölvur í skólum
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Fyrirspurn til Matvælastofnunar
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:
Sóríasis
TAkk
:D 17. 01. 2012 20:21:

Fréttir frá: