Fréttir
18. júní - Dagur hinna villtu blóma
Dagur hinna villtu blóma verður haldinn á Íslandi og á hinum Norðurlöndunum sunnudaginn 18. júní. Þann dag gefst fólki víðs vegar um landið kostur á að fara í tveggja tíma gönguferð um nágrenni sitt án endurgjalds, og fá leiðsögn um algengustu plöntur sem þar vaxa.Þann 18. júní 2006 verða plöntuskoðunarferðir skipulagðar á degi hinna villtu blóma á eftirtöldum stöðum:
1. Reykjavík, Undirhlíðar í Reykjanesfólkvangi. Brottför með rútu frá Ferðafélagi Íslands Mörkinni 6, kl. 10:00 og ekið að Undirhlíðum til plöntuskoðunar. Á eftur verður farið í Grasagarðinn í Laugardal, sem stendur að plöntuskoðuninni ásamt Ferðafélagi Íslands. Ferðalok um kl. 14:00. Leiðsögn: Eva G. Þorvaldsdóttir.
2. Hvanneyri. Mæting við Hvanneyrarkirkju kl. 13:00. Leiðsögn: Björn Þorsteinsson og Anna Guðrún Þórhallsdóttir.
3. Ísafjörður. Mæting á tjaldstæðinu í Tungudal kl. 13:00. Leiðsögn: Helga Friðriksdóttir.
4. Hólmavík. Mæting á Upplýsingamiðstöð ferðamála við tjaldsvæðið kl. 13:00. Leiðsögn: Hafdís Sturlaugsdóttir og Matthías Lýðsson.
5. Skagafjörður. Mæting við íþróttahúsið á Sauðárkróki kl. 16:00. Leiðsögn: Gróa Valgerður Ingimundardóttir.
6. Siglufjörður. Mæting við Siglufjarðarkirkju kl. 13:00. Leiðsögn: Sigurður Ægisson.
7. Dalvík, Hrísahöfði. Mæting við afleggjarann upp á Hrísahöfða kl.16:00. Leiðsögn: Þórir Haraldsson.
8. Akureyri, Krossanesborgir. Mæting við bílastæðið sunnan Lónsbakka austan Hörgárbrautar kl. 10:00. Leiðsögn: Elín Gunnlaugsdóttir.
9. Mývatnssveit. Mæting á bílastæði göngustígs inni á afleggjara að Kálfaströnd kl. 10:00. Leiðsögn: Hörður Kristinsson.
10. Fljótsdalshérað, Unaós. Mæting á Unaósi á bílastæðinu við upphaf gönguleiðarinnar í Stapavík kl. 14:00. Leiðsögn: Þorsteinn Bergsson og Soffía Ingvarsdóttir.
11. Neskaupstaður. Mæting á bílaplaninu úti í Fólkvangi (hjá vitanum) kl. 10:00. Leiðsögn: Guðrún Á. Jónsdóttir.
12. Höfn í Hornafirði, Óslandið. Mæting við Gistiheimilið Ásgarð kl. 13:30. Leiðsögn: Brynjúlfur Brynjólfsson, gengið verður um Óslandið.
13. Skaftafell í Öræfum. Mæting við Þjónustumiðstöðina í Skaftafelli kl. 14:00. Leiðsögn: Hálfdán Björnsson.
14. Stjórnarsandur austan Kirkjubæjarklausturs. Mæting við hliðið hjá skilti Skógræktarfélagsins Markar kl. 20:30. Leiðbeinendur: Ólafía Jakobsdóttir og Sigurlaug Jónsdóttir.
Gönguferðir þessar eru ókeypis fyrir þátttakendur, og ekki þarf að tilkynna þátttöku fyrir fram, heldur aðeins mæta á auglýstum stað á réttum tíma. Í fyrra stóð óhagstætt veður víða í vegi fyrir góðri þátttöku, en vonandi verður veður hagstæðara í ár. Hversu víða verður hægt að bjóða upp á plöntuskoðun fer eftir því hversu margir sjálfboðaliðar fást til að veita leiðsögn. Hér með er óskað eftir að væntanlegir leiðsögumenn tilkynni sig í netfangið hkris@ni.is
Einkunn
- - - -
Tengt lesefni:
: Náttúruvernd [109]
: Samfélagið [59]
Grænar síður:
Náttúruvernd [16]

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búast má við stormi (meira en 20 m/s) á SV-verðu landinu á morgun. Gildir til 07.02.2012 18:00Meira

Nýleg orð í belg
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:















