Fréttir
2 ráðherrar tala fyrir stefnubreytingu í stóriðju- og umhverfismálum
Jónína Bjartmarz, hinn ný ji umhverfisráðherra og Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, lýstu því bæði yfir í dag að þau vilji stækka friðland Þjórsárvera og hætta við gerð Norðlingaölduveitu. Ástæðan sem Guðni nefnir er sú að mikilvægt sé að skapa samstöðu um náttúruna og að nauðsynlegt sé fyrir Framsóknarflokkinn að endurskoða stefnuna í stóriðju- og umhverfismálum.Ummæli ráðherranna fylgja í kjölfar úrskurðar Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í gær þar sem hluti úrskurðar Jóns Kristjánssonar setts umhverfisráðherra (frá 30.01.2003) er felld úr gildi og umhverfismat úrskurðað nauðsynlegt áður en framkvæmdir við set- og miðlunarlón norðan og vestan Þjórsárvera og veituskurðar í Þjórsárlón geta hafist.
Í sama úrskurði var íslenska ríkið og Landsvrikjun þó sýknuð af kröfum fjölda einstaklinga og Áhugahópi um Þjórsárver þar sem farið var fram á að úrskurðurinn verði felldur úr gildi í heild sinni. Stefndu, íslenska ríkið og Landsvirkjun voru dæmd til að greiða stefnendum 1,5 millj. króna í málskosnað auk virðisaukaskatts. Samhliða því að ráðherrrarnir sýna nú áhuga á að hætta alfarið við framkvæmdirnar íhugar Landsvirkjun að áfrþja þeim hluta úrskurðar Héraðsdóms til Hæstaréttar er var fyrirtækinu óhagstætt. Landsvirkjun stendur því frammi fyrir því að annað hvoru ráðast nú þegar í að mat á umhverfisáhrifum verði sett í gang, eða áfrþja og bíða úrskurðar Hæstaréttar.
Einkunn
Tengt lesefni:
Grænar síður:

E -
Sláið inn númer E-efnis eða upphaf heitis, veljið úr listanum og smellið á sækja.
Viðburðadagatal
Viðvörun
Búast má við stormi (meira en 20 m/s) á SV-verðu landinu á morgun. Gildir til 07.02.2012 18:00Meira

Nýleg orð í belg
'Eg er einn af mörgum vinum lúpínunnar.Vil að hún sé notuð til uppgræðslu á örfoka ...
Eyjólfur Guðmundsson 5. 02. 2012 19:00:
Matvælastofnun vísar á heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna um eftirlitsskyldu. Hinsvegar hefur Matvælastofnun ekkert kynnt eða rætt málið ...
Lesandi 31. 01. 2012 18:23:
Sæl María. Við sendum opna fyrirspurn um þetta til MAST og hér að ofan má ...
Guðrún Tryggvadóttir 26. 01. 2012 23:57:
er byrjað að merkja þessar vörur? ég hef ekki tekið eftir neinum merkingum ennþá.
María 26. 01. 2012 12:12:
Veit það því miður ekki. Ég myndi spyrja Kollu grasalækni eða heilsubúðirnar.
Guðrún Tryggvadóttir 24. 01. 2012 14:49:
Náttúran beindi fyrirspurn til Stéfáns Gíslasonar um rafbækur og umhverfið og sendi hann okkur þennan ...
um rafbækur og umhverfið 23. 01. 2012 11:01:
Svar Matvælastofnunar hefur borist: „Merkingar á matvörum með erfðabreyttu innihaldi“. Reglugerðin um merkingu erfðabreyttra matvæla ...
Guðrún Tryggvadóttir 18. 01. 2012 11:02:















